Yfirgnæfandi líkur eru á að eldgos sé að hefjast undir Eyjafjallajökli. Verið er að rýma öll hættusvæði umhverfis jökulinn. Áður var búið að rýma sveitina undir Eyjafjöllum en nú verður ráðist í að rýma Fljótshlíðina, Merkurbæina og Landeyjar. Samhæfingarstöðin starfar nú á neyðarstigi. Meira
Gosóróinn í Eyjafjallajökli bendir til að eldgos sé hafið. Sé svo er það væntanlega neðan jökuls því annars væru vatnavextir hafnir á svæðinu. Fleiri svæði hafa verið rýmd. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, sem er staddur á Veðurstofunni ásamt öðrum sérfræðingum. Meira
„Nú er óróinn orðinn nokkurn veginn eins og hann var fyrir gos, sem sagt rói. Eru lok gossins að nálgast? Eða er því jafnvel lokið?" spyr Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur í pistli á vefsíðu sinni í kvöld. Þar birtir Haraldur línurit sem sýnir óróann á Fimmvörðuhálsi frá því fyrir gos. Meira
Leiðangursmenn Top Gear óku jeppa, sérstaklega breyttum, upp á nýrunnið hraun á Fimmvörðuhálsi. Þótt dekkin væru kæld með vatni kviknaði samt í einu þeirra við hraunaksturinn. Leiðangursmenn komu heilu og höldnu af jöklinum í nótt eftir ævintýraferð. Meira
Nokkuð jafn gangur virðist hafa verið í gosinu á Fimmvörðuhálsi í alla nótt. Töluverður gosórói hefur verið á mælum Veðurstofunnar í nótt og farið heldur vaxandi nú undir morgun, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. Mikil umferð hefur verið í alla nótt á Suðurlandi. Meira
Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir yfir áhyggjum af samskiptaerfiðleikum almannavarna við fréttamenn og ljósmyndara sem fluttu fréttir af eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Langur tími hafi liðið þar til ljósmyndarar fengu að fara nálægt gosinu en á meðan hafi myndir sem björgunarsveitarmenn tóku á vettvangi gengið kaupum og sölum. Meira
Martin Rietze, þýskur eldfjallaljósmyndari, var kominn að eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi eldsnemma í gær. Hann lagði af stað fótgangandi frá Skógum um klukkan tvö og var kominn á hálsinn í ljósaskiptunum. Meira
Fell hefur myndast við gígana á Fimmvörðuhálsi eins og greinilega má sjá á myndum sem Ólafur Örn Nielsen tók úr flugvél yfir gosstöðvunum rétt fyrir kl. 13.00 í dag. Hraunsletturnar þeyttust þá á annað hundrað metra upp úr gígnum. Meira
Góðar líkur verða að teljast á að jökulhlaup úr Mýrdalsjökli leiti fram Mýrdalssandinn gjósi Katla. Ekki er þó hægt að útiloka að hlaup færi yfir Sólheimasand eða Markarfljótsaurana. Meira
„Ég var bara nýfarinn að sofa. Svo vaknaði ég við að bróðir minn kom og sagði að það væri komið eldgos. Ég trúði þessu nú ekkert alveg strax,“ segir Bjarki H. Björgvinsson sem er 13 ára gamall og býr í Vorsabæ í Austur-Landeyjum, á rýmingarsvæði almannavarna. Meira
„Þetta var tilkomumikið og stórfenglegt eins og eldgos eru jafnan,“ sagði Þór Kjartansson sem ásamt þremur öðrum félögum sínum í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík komst á vélsleða mjög nálægt gossprungunni á Fimmvörðuhálsi í dag, skömmu áður en leiðin þangað lokaðist vegna vonskuveðurs. Meira
„Þetta var einstök upplifun,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, sem í dag skoðaði gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi. Hún flug með vél Landhelgisgæslunnar ásamt Kjartani Þorkelssyni sýslumanni á Hvolsvelli og fleirum. Meira
Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun, segir að litlar breytingar hafi orðið á gosvirkni þá þrjá tíma sem hann fylgdist með gosinu úr lofti snemma í morgun. Hann segir hugsanlegt að gossprungan á Fimmvörðuhálsi lengist þegar líður á gosið. Meira
„Þetta er ekki stórgos, en það hefur heldur verið að færast í aukna núna á fyrstu sex klukkustundunum," segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. Hann kom um klukkan sex úr flugi jarðvísindamanna yfir gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi með flugvél Gæslunnar. Meira
Freysteinn Sigmundsson forstöðumaður Norrænu eldfjallastöðvarinnar, telur mjög brýnt að fylgst verði vel með bæði Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli eftir að mælingar leiddu í ljós hreyfingu á jarðskorpunni undir Fimmvörðuhálsi. Meira